Manstu þegar tónlistin var annað og meira en bakgrunnshljóð?
.
Þegar lag gat flutt þig aftur í tíma – á dansgólfið, í bíltúr, til baka til æskuáranna, í augnablik sem enn situr djúpt í hjartanu.
.

.
Ekki bara tónlist, einnig bílar, tískan og tíðarandinn!
Manstu.com er tileinkuð vinsælli íslenskri og erlendri dægurtónlist fyrri ára. Hér er safnað saman lögum sem vöktu gleði, söknuð og samkennd – tónlist sem mótaði heilar kynslóðir og lifir enn í minningunum. Að hlusta á gömul lög er ekki bara skemmtun; það er ferðalag um eigið líf, minningar rifjast upp og tíminn fær nýja merkingu.
Á Manstu.com fær tónlistin að njóta sín. Playlistarnir eru lausir við auglýsingar, truflanir og hávaða samtímans. Hér er ekkert sem ryður sér inn á milli þín og laganna – bara tónlistin, eins og hún á að vera.
Síðan er þó meira en safn laga. Hér má einnig finna fróðleik, sögubrot og upplýsingar um hljómsveitirnar, tónlistarmennina og einstaklingana sem stóðu á bak við lögin. Smáatriði, minningar og brot úr sögu sem hjálpa til við að setja tónlistina í samhengi og gera hlustunina enn ríkari.
Manstu.com er fyrir alla sem kunna að meta tíðaranda fyrri ára, fyrir þá sem muna – og þá sem vilja kynnast. Þetta er staður þar sem minningarnar fá að lifa, tónlistin fær rými og tíminn má hægja aðeins á sér.
