Skip to content

Styrktarkveðjur

Styrktarkveðja hjá manstu.com er áahrifarík leið fyrir fyrirtæki til að styðja við íslenskt barnaefni og um leið skapa jákvæða og eftirminnilega tengingu við fjölskyldur.

Fyrirtækið fær 20–30 sekúndna persónulega kveðju sem birtist í lok barnasögu, barnalags eða annars barnaefnis sem birtist á Gagn og Gaman, FB, YouTube og fleyri samskipasíðum. Kveðjan er hlýleg, glaðleg og í anda fyrirtækisins – hún kemur í framhaldi af sögunni/laginu eins og eðlilegur hluti af upplifuninni en ekki eins auglýsing.

Með styrktarkveðjunni gefur fyrirtækið fjölskyldum kost á FRÍUM aðgangi að Gagn og Gaman, vef fyrir börn og fjölskyldur þar sem finna má fjölbreytt og vandað barnaefi.

Á Gagn og Gaman má meðal annars finna:

📚 Vandaðar og fallega myndskreyttar barnasögur
🎵 Fjölda sönglaga fyrir börn
🌾 Sögur úr sveitinni og íslensku umhverfi
🧩 Púsl og skemmtilega leiki
🌈 Fjölbreytt annað efni sem hentar börnum og fjölskyldum

Þannig verður styrktarkveðjan meira en einföld kynning. Fyrirtækið er að gefa börnum og fjölskyldum eitthvað sem þau geta notið, á sama tíma og fyrirtækið sýnir samfélagslega ábyrgð og byggir upp jákvæða ímynd.

🎁 Hvernig virkar þetta?

Fyrirtækið styrkir valið barnaefni og fær sína persónulegu 20–30 sekúndna kveðju í lok myndbandsins.
Fjölskyldur sem vilja nýta sér FRÍU áskriftina fara einfaldlega inn á Gagn og Gaman og nota afsláttarkóðann:

IBODI [NAFN FYRIRTÆKISINS]

Þá fær fjölskyldan aðgang að vefnum samkvæmt þeim áskriftarskilmálum sem í boði eru.
Fyrirtækið gefur til baka til samfélagsins. Börnin fá að njóta. Foreldrarnir kunna að meta það. Og fyrirtækið byggir upp velvild sem getur enst lengi.
Styrktarkveðja – falleg leið til að láta gott af sér leiða.

Dæmi um Styrktarkveðju!

Myndband í líkingu við þetta tekur við þegar skemmtilegt barnalag eða saga hefur runnið sitt skeyð.
Horf’ðu á þetta myndband til að fá hugmynd sem þú telur að geti hentað þínu fyrirtæki.

PANTA STYRKTARKVEÐJU